Minna aflaverðmæti staðfestir fiskverðlækkun
Í september 2016 var aflaverðmæti íslenskra skipa tæplega 12,2 milljarðar króna sem er samdráttur um 1,9% samanborið við september 2015, þrátt fyrir aukningu fiskaflans í sama mánuði um 22%. Verðmæti botnfiskafla nam tæpum 6,9 milljörðum og dróst saman um tæp 20% frá fyrra ári. Uppistaðan í verðmæti botnfiskaflans var þorskur en verðmæti hans nam tæpum 4,5 milljörðum í september sem er tæpum 1,1 milljarði minna en í september 2015 samkvæmt frétt frá Hagstofu Íslands.
Verðmæti uppsjávarafla jókst hins vegar á milli ára, nam tæpum 4,5 milljörðum sem er 52,6% meira en í september 2015, munar þar mestu um aukinn makrílafla. Einnig varð tæplega 22% aukning í verðmæti flatfiskafla sem nam 621 milljónum króna í september. Aflaverðmæti skelfisks dróst saman um 45% og nam 215 milljónum samanborið við 394 milljónir í september 2015.
Á 12 mánaða tímabili frá október 2015 til september 2016 var aflaverðmæti 137,6 milljarðar króna sem er 10% samdráttur miðað við sama tímabil ári fyrr. Munar þar mestu um 29% samdrátt í aflaverðmæti uppsjávartegunda.
Þessi samdráttur er athyglisverður í ljósi þess að heildarafli í september varð 113.000 tonn, sem er aukning um 22%, en verðmætið lækkar um 1,9%. Botnfiskaflinn í september dróst saman um 2% en verðmæti hans varð 6,9 milljarðar króna, sem er 19,8 % samdráttur. Þorskaflinn í september varð ríflega 22.000 tonn, sem var 3% samdráttur frá sama mánuði árið áður. Verðmætið varð 4,4 milljarðar króna og féll um 20%. Varla er hægt að lesa annað út úr þessum tölum en að þær endurspegli mikla verðlækkun á fiski upp úr sjó. Svipað er að segja um aðrar botnfisktegundir.
Í flatfiskinum er myndin önnur. Þar jókst aflinn í september um 18%, en verðmæti hans um 21,8%.
Uppsjávarafli í september varð 74.000 tonn, 53.000 tonn af makríl, 19.600 tonn af síld og 1.300 tonn af kolmunna. Samtals er það 38% aukning og í makrílnum er aukningin 61%. Verðmætin voru 4,5 milljarðar króna og uxu um 52.6%. Í síldinni virðist verðið hafa lækkað, en verðmæti landaðs makríls jókst um 92,3%. Það er mun meira en magnið jókst og skýrist líklega af því mun hærra hlutfalli aflans hefur nú verið landað frystu en fersku. Fyrir frysta makrílinn fæst mun hærra verð.