Hnakkaþon haldið í þriðja sinn
Hnakkaþon Háskólans í Reykjavík (HR) og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hófst í gær og er nú haldið í þriðja sinn. Í Hnakkaþoni reyna nemendur HR með sér í lausn verkefna sem tengjast íslenskum sjávarútvegi.
Að þessu sinni munu nemendur vinna að verkefni með Vísi í Grindavík, Marel og prentsmiðjunni Odda.
Sigurliðinu boðið á sjávarútvegssýninguna í Boston
Úrslitin verða kynnt á morgun kl. 16:00. Það er til mikils að vinna því Icelandair Group og sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi bjóða sigurliðinu á sjávarútvegssýninguna Seafood Expo North America, í Boston í mars.
Keppnin hófst í gær kl. 13:00. Þá fengu liðin ítarlegar upplýsingar um verkefnið og hittu sérfræðinga úr sjávarútvegsfyrirtækjum og tengdum greinum til skrafs og ráðagerða.
Á morgun kl. 14-15:00 kynna liðin niðurstöður sínar og tillögur að lausnum fyrir dómnefnd. Verðlaunaafhending fyrir bestu lausnina fer fram kl. 16:00.
Einvalalið sérfræðinga skipar dómnefnd Hnakkaþonsins 2017:
Ari Kristinn Jónsson, rektor HR
Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands
Bjarni Guðjónsson, sölustjóri sjávarútvegs hjá Odda
Erla Ósk Pétursdóttir, gæða- og þróunarstjóri Vísis
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips
Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo
Hallur Þór Sigurðarson, aðjúnkt við viðskiptadeild HR
Hrefna Sigríður Briem, forstöðumaður B.Sc.-náms við viðskipta- og hagfræðideild HR
Karen Kjartansdóttir, samskiptastjóri SFS
Pálmi Jónsson, framkvæmdastjóri Blámar
Margþætt atvinnugrein í sífelldri þróun
Íslenskur sjávarútvegur er margþætt atvinnugrein sem kallar á mikla þekkingu og sérhæft starfsfólk. Meðal viðfangsefna hans eru fiskveiðar, matvælavinnsla, markaðssetning, nýsköpun og tækniþróun, flutningar, rannsóknir, umhverfismál og margt fleira.
Markmiðið með Hnakkaþoninu er að kynna þau ótalmörgu tækifæri til nýsköpunar og fjölbreyttu störf sem íslenskur sjávarútvegur býður upp á og kalla fram nýjar og frískar hugmyndir frá nemendum HR. Þá er eitt af meginmarkmiðum Hnakkaþonsins að minna nemendur á að arðbærni og góð umgengni um náttúruna verða að fara saman ef atvinnustarfsemi á að vera sjálfbær.
Hnakkaþonið er einnig liður í áherslu Háskólans í Reykjavík á raunhæf verkefni í námi, í samvinnu við íslenskt atvinnulíf, að því er fram kemur í tilkynningu skólans um verkefnið.
Á myndinni er sigurlið síðasta árs í heimsókn hjá Þorbirni hf. í Grindavík.