Samráðsfundur LS og Fiskistofu
Fulltrúar Landssambands smábátaeigenda og Fiskistofu áttu árangursríkan samráðsfund nú í bikunni og er fyrirhugað að halda fleiri slíka í framtíðinni. Markmiðið er að miðla upplýsingum milli aðila um stjórn fiskveiða og ræða þau atriði sem upp hafa komið og betur mega fara.
Meðal þeirra málefna sem rædd voru á fundinum voru:
- Grásleppuveiðar – upphaf og lok veiða, mælingar á lengd neta og mikilvægi þess að skrá
allan meðafla þar með talið sjávarspendýr og fugla.
- Strandveiðar – aðferðir til að koma í veg fyrir að afli fari umfram dagsskammtinn,
sambandsleysi við AIS, viðurlög við brotum.
- Afstemmingu aflatalna af vigtarskýrslum og aflaskráningarkerfi Fiskistofu GAFLI.
- Að upplýsingar sem sendar eru í pósti færist yfir í rafrænar sendingar.
Í lok fundar lýstu báðir aðilar yfir ánægju þennan fyrst samráðsfund og var ákveðið að framhald verði á.