Þorskaflinn yfir 250.000 tonn
Á síðasta ári fór þorskafli á Íslandsmiðum í fyrsta skiptið á þessari öld yfir 250 þúsund tonn. Alls veiddust 250.368 tonn samkvæmt samantekt á heimasíðu Landsambands smábátaeigenda. Liðin eru 16 ár frá því meira veiddist, en 1999 skilaði 259.209 tonn.
Á grafinu má sjá þróunina síðastliðna tvo áratugi. Meðaltalið er 207.555 tonn, minnst veiddist árið 2008 aðeins 144.332 tonn, en mestur var aflinn 1999.