Deilan í alvarlegum hnút
„Fundurinn var árangurslaus og deilan er í alvarlegum hnút. En verkefnið fer ekkert af borði samninganefndanna. Fyrir vikið fór ég fram á það við viðsemjendur að þeir ræddu ekki efni deilunnar í fjölmiðlum á þessu stigi enda er hún mjög viðkvæm.“
Þetta segir Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari í samtali við mbl.is en samningafundi í kjaradeilu sjómanna við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) var slitið rétt fyrir klukkan þrjú. Fundurinn hófst í húsakynnum embættisins klukkan 13:00 í dag.
Gert er ráð fyrir því að það sem gerist við samningaborðið sé háð trúnaði þar til samningur hefur verið samþykktur að sögn Bryndísar. „Þannig að þetta var einfaldlega árangurslaus fundur og ég mun boða nýjan fund eftir hálfan mánuð.“
Spurð hvort gert sé ráð fyrir að viðsemjendur reyni að nálgast hvorn annan í millitíðinni segir Bryndís: „Það verkefni er áfram á herðum aðilum deilunnar og fer ekkert frá þeim fyrr en samningar hafa náðst.“
Ríkisstjórnin hefur ekki í hyggju neinar aðgerðir til að stöðva verkfall sjómanna, sem nú hefur staðið yfir í hálfan annan mánuð. Þetta sagði Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, í samtali við mbl.is að loknum fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.
„Við erum ekki að ræða neins konar inngrip í þessa kjaradeilu. Við leggjum áherslu á að það eru deiluaðilarnir sem bera ábyrgð á að ná samningum, og á þessu stigi málsins viljum við fylgjast vel með,“ sagði Bjarni.
Bætti hann við að verið sé að meta heildaráhrif verkfallsins á samfélagið.
„Það er mikið nákvæmnisverk, en engu að síður mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir því hvar áhrifa verkfallsins gætir mest í þjóðfélaginu.“
Kapp lagt á góð samskipti
Þá sagði hann ríkisstjórnina hafa lagt kapp á að vera í góðum samskiptum við ríkissáttasemjara sem og deiluaðilana.
„Ekki síst til að hvetja menn til að leggja meira á sig við að ljúka þessu verkfalli.“
Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, var á sama máli. Sagði hann ekki koma til greina að skipta sér af deilunni.
„Ríkisstjórnin ætlar ekki að skipta sér af þessari kjaradeilu. Það er margyfirlýst.“