Hrognin eru að koma
Börkur NK kom með 700 tonn af loðnu til Helguvíkur á miðvikudag og hófst þá hrognakreisting. Það er síðan Saltver ehf í Reykjanesbæ sem annast pökkun og frystingu hrognanna. Kreistingin gekk vel og hóst frysting hefjast í gær.
Eggert Ólafur Einarsson, verksmiðjustjóri í Helguvík, sagði í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar að vinnsla í fiskimjölsverksmiðjunni gengi vel en nú hefur verið tekið á móti 5.000 tonnum þar. „Það eru stífir dagar framundan eins og ávallt á meðan á hrognatöku stendur,“ sagði Eggert.
Vilhelm Þorsteinsson EA kom til Helguvíkur í gær með 2.000 tonn sem væntanlega verða kreist. Þá var Bjarni Ólafsson AK á leið til Neskaupstaðar með fullfermi af hrognaloðnu. Polar Amaroq var að landa fullfermi á Seyðisfirði og Beitir NK að landa í Neskaupstað.
Hrognin eru að koma! Myndin var tekin í Saltveri í gær. Ljósm. Guðjón Helgi Þorsteinsson