Loðna og hrogn fryst á sama tíma
Loðna úr Ísleifi var fryst á þriðjudag og sömuleiðis hrogn úr loðnu úr KAP. „Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið gert samtímis fyrr í Vinnslustöðinni,“ segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarvinnslunnar í samtali á heimasíðu VSV. Þar með fjarar loðnuvertíðin út í þetta sinn …
Loðnan gufaði eiginlega upp á sunnudaginn, hvarf hreinlega á miðunum. Svo gerði hún vart við sig hér og þar á mánudag. Þá var Ísleifur VE kominn á Fljótagrunn (norður af Siglufirði) og náði í þúsund tonna farm af loðnu sem ekki var hæf til hrognatöku en er fryst. Ástandið á henni var svipað og á loðnu sem veiddist við Eyjar 23.-24. febrúar nema hún var minni, um það bil 50 stykki í kílói.
KAP VE fór í vesturátt og náði í ein 800 tonn úr loðnutorfum úti fyrir Patreksfirði. Hrogn úr þeirri loðnu er nú fryst hjá VSV.
Þar með sér fyrir enda vertíðarinnar. Vinnslu loðnu lýkur trúlega í dag, en brætt verður eitthvað lengur.