Ekki sást gára frá múkka
Strandveiðar eru nú komnar á fullt skrið. Landanir yfir þúsund og 377 bátar búnir að virkja leyfin. Að loknum 4. degi veiðanna var mest búið af maískammtinum á svæði A, 39% samkvæmt frétt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.
Að sögn Andra Viðars Víglundssonar, á Margréti ÓF Ólafsfirði, er þorskurinn kominn á slóðina, mun betri veiði nú á fyrstu dögum strandveiða en undanfarin ár. Flestir í mokveiði. Sá sem varð fyrstur í land sl. fimmtudag sá fuglager útaf Múlanum, drap á og lét reka inn í gerið. Hann náði aldrei að renna nema þremur rúllum af fjórum áður en skammtinum var náð.
Aðrir sem voru á veiðum 4. maí létu vel af sér og ekki óalgengt að menn væru komnir í land uppúr hádegi í slíkri blíðu að ekki sást gára frá múkka. Myndin sem hér fylgir sýnir þetta glöggt, en hana tók Víðir Örn Jónsson á Víði ÞH Grenivík þennan sama dag.