Sjóarinn síkáti – fjölskylduhátíð í Grindavík

Deila:

Dagskrá Sjóarans síkáta 2017 liggur nú fyrir og auk hefðbundinna dagskráratriða er börnum gert hátt undir höfði með sérstökum skemmtunum og leiktækjum.

Sjoarinn_sikati_orskur_batur_9-11juni-2017

Hátíðin hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem ein vinsælasta fjölskylduhátíð á landinu og iðar Grindavík af lífi alla helgina og rúmlega það. Dagskráin í ár er glæsileg að vanda og hefur engu verið til sparað til að gera hana sem veglegasta.

Dagskráin nær að sjálfsögðu hámarki dagana 9. – 11. júní en byrjað var að hita upp strax í gær og stigmagnast dagskráin svo dag frá degi. Á föstudeginum er litaskrúðganga hverfanna á sínum stað, ásamt bryggjuballi þar sem Ingó og veðurguðirnir munu halda uppi stuðinu. Þá mun úrval grindvískra skemmtikrafta stíga á svið á föstudagskvöldinu.

Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi á Sjóaranum í ár. Barnadagskráin er í stóru hlutverki laugardag og sunnudag, en þá koma fram Bjarni töframaður, Solla stirða, Siggi sæti, Íþróttaálfurinn, Halla hrekkjusvín, Skoppa og skrítla, Sirkus Íslands, diskótekið Dísa og Bíbí & Björgvin. Þá verður einnig starfræktur töfraskóli á laugardeginum í umsjón Einars Mikaels. Svo má ekki gleyma leiktækjunum!

Böll og dansleikir verða út um allan bæ. Síðan skein sól spilar á árlegum dansleik körfuknattleiksdeildarinnar í íþróttahúsinu, ásamt Emmsjé Gauta og DJ Agli Birgis. KK Band spilar á Fish house og Dalton á Salthúsinu.

Dagskrána má sjá í heild hér að neðan.

Ljósmynd vf.is

Dagskrá Sjóarans síkáta 2017

 

Deila: