Sækja þarf sérstaklega um sérveiðileyfi
Fiskistofa vekur athygli á því að sækja þarf sérstaklega um öll sérveiðileyfi fyrir hvert fiskveiðiár. Núgildandi sérleyfi falla úr gildi þann 31. ágúst nk. Vegna komandi fiskveiðárs 2018/2019 þarf að sækja sérstaklega um eftirtalin leyfi og er það gert í Ugga, þjónustugátt Fiskistofu.
- Dragnótarveiðileyfi
- Leyfi til veiða á ígulkerum *
- Leyfi til veiða á kúfskel til manneldis *
- Leyfi til veiða á beitukóngi *
- Leyfi til veiða á kröbbum
- Leyfi til frístundaveiða (Skilyrði útgáfu leyfis er að rekstraraðili báts hafi ferðaskipulegjandaleyfi Ferðamálastofu og þeir báta sem hyggjast veiða á sjóstöng án fénýtingar aflans þufa farþegaleyfi Samgöngustofu)
- Leyfi til skarkolaveiða í Faxaflóa (takmarkað við ákveðinn hóp skipa)
* Með umsókn um stjörnumerkt leyfi skal fylgja samningur um vinnslu í landi eða jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er að ræða. Í báðum tilfellum þarf staðfesting frá MAST að fylgja um að viðkomandi vinnsla hafi gilt vinnsluleyfi frá MAST.
Makrílveiðileyfi
Fiskistofa vekur jafnframt athygli á að strandveiðibátar geta nú sótt um makrílveiðileyfi vegna ársins 2018. Makrílveiðileyfi strandveiðibáta sem sótt er um nú gilda frá 1. september nk.