Kínversk ýsa
„Hljómar skringilega kannski, kínversk ýsa, en þessi réttur er algjört nammi, algjör dekurýsa og alveg þess virði að prófa hann. Bráðhollur réttur í þokkabót. Mig minnir að upprunalega hafi þessi uppskrift komið úr Nýkaupsbókinni hans Sigga Hall en ég er lítillega búin að breyta uppskriftinni (nota kókosolíu í stað ólífuolíu, tamarisósu í stað sojasósu og agavesíróp í stað sykurs).“
Svona hljómar inngangur að eftirfarandi uppskrift á vefsíðunni cafesigrun.com og við mælum með því lesendur okkar prufi að elda ýsu á kínverskan hátt.
Innihald:
800 g ýsuflök, beinhreinsuð og roðflett
1 msk kókosolía
1 msk sesamolía
3 msk tamarisósa
1 msk hvítvínsedik (e. hvítvínsedik) eða hrísgrjónaedik
Nokkrir steviadropar án bragðefna eða 1 msk agavesíróp
3 sm bútur ferskt engifer, afhýtt og saxað mjög smátt
3 hvítlauksrif, afhýdd og söxuð smátt
4-8 vorlaukar (eftir stærð), skornir í 5 sm bita (ljósi og græni hlutinn)
1 rauð eða gul paprika, skorin í strimla
Smá klípa svartur pipar
Aðferð:
Skerið ýsuna í 12 jafnstóra bita.
Blandið saman í skál; kókosolíunni, tamarisósunni, hvítvínsedikinu og steviadropum. Hrærið vel.
Afhýðið engiferinn og hvítlaukinn og saxið smátt. Setjið út í skálina.
Skerið vorlaukana í 5 sm bita og setjið í skálina.
Skerið paprikuna langsum, fræhreinsið og skerið hana í strimla. Setjið út í skálina.
Hellið innihaldi skálarinnar yfir ýsubitana. Látið ýsubitana liggja í vökvanum í 1-2 klukkustundir eða lengur
Takið ýsubitana upp úr og leggið í eldfast mót.
Takið sem mest af grænmetinu sem er í skálinni og látið það með skeið ofan á ýsubitann. Hellið vökvanum yfir ýsubitana.
Kryddið svolítið með svörtum pipar.
Hitið ofninn í 140°C og bakið fiskinn í 10-15 mínútur.
Berið fram með hýðishrísgrjónum eða byggi og tamarisósu.
Nota má gula papriku í staðinn fyrir rauða.
Nota má annan fisk í staðinn fyrir ýsu t.d. þorsk, steinbít eða lúðu.