Tveir nýir í stjórn SVG
Sigurjón Veigar Þórðarson og Kári Ölversson koma nýir inn í stjórn Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, en aðalfundur félagsins fór fram milli jóla og nýárs. Allir sitjandi stjórnarmenn gáfu kost á sér aftur, nema Sigurður Sverrir Guðmundsson, gjaldkeri. Í hans stað bauð Kári Ölversson sig einn fram í það embætti og var því sjálfkjörinn.
Tveir sóttust eftir að vera varaformenn, þeir Sigurjón Veigar Þórðarson, vélstjóri á Gnúp og Ingvi Örn Ingvason, sjómaður. Sigurjón hafði betur og kemur því nýr inn í stjórnina. Sigurjón Veigar sagðist í samtali við vefsíðuna grindavik.is hlakka til að takast á við ný verkefni og sagðist mjög þakklátur fyrir það traust sem honum væri sýnt.
Á meðfylgjandi mynd má sjá stjórn Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur til næstu tveggja ára.
f.v. Sigurjón Veigar Þórðarson varaformaður, Einar Hannes Harðarson formaður, Kári Ölversson gjaldkeri, Kristinn Einarsson meðstjórnandi og Steingrímur Kjartansson ritari.