Mast veitir leyfi til fiskeldis fyrir austan
Matvælastofnun hefur veitt Fiskeldi Austfjarða hf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Berufirði og Fáskrúðsfirði í samræmi við lög um fiskeldi.
Fiskeldi Austfjarða sótti um stækkun á rekstrarleyfi úr 8.000 tonnum af regnbogasilungi og laxi í 9.800 af laxi í Berufirði og úr 3.000 tonnum af regnbogasilungi í 11.000 tonn af laxi í Fáskrúðsfirði. Umsókn um rekstrarleyfi var móttekin 13. desember 2017. Við gildistöku nýrra rekstrarleyfa í Berufirði (FE-1138) og Fáskrúðsfirði (FE-1139) falla eldri rekstrarleyfi úr gildi.
Hámarkslífmassi eldisins í Berufirði mun ekki fara yfir 9.800 tonn og í Fáskrúðsfirði ekki fara yfir 11.000 tonn sem er í samræmi við burðarþolsmat fjarðanna. Tekið var tillit til áhættumats Hafrannsóknastofnunar við útgáfu rekstrarleyfanna. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.
Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.
Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu fyrrnefndra rekstrarleyfa til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar fréttar.
Ítarefni
- Rekstrarleyfi Matvælastofnunar til Fiskeldis Austfjarða hf. vegna sjókvíaeldis í Berufirði
- Rekstrarleyfi Matvælastofnunar til Fiskeldis Austfjarða hf. vegna sjókvíaeldis í Fáskrúðsfirði
- Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum
- Matsskýrsla Fiskeldis Austfjarða hf.
- Viðbót Fiskeldis Austfjarða hf. við matsskýrslu vegna valkosta
- Afstaða Matvælastofnunar til álits Skipulagsstofnunar