Verðmæti þorskaflans jókst um 17% í fyrra
Aflaverðmæti úr sjó var tæpir 126,3 milljarðar árið 2018 sem er 14,8% aukning samanborið við árið 2017. Verðmæti botnfiskaflans nam 89 milljörðum og jókst um 16,9%. Þorskur er sem fyrr verðmætasta tegundin með aflaverðmæti upp á 55,8 milljarða, sem er 14,5% aukning milli ára. Af öðrum botnfisktegundum nam aflaverðmæti ýsu 10,6 milljörðum (+33,2%), karfa 10,2 milljörðum (+15,5%) og ufsa 7,9 milljörðum (+23,6%). Verðmæti uppsjávarafla var 24,4 milljarðar sem er 2,6% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti flatfisks jókst um 35,6% á milli ára og var 10,2 milljarðar árið 2018. Verðmæti skel- og krabbadýraaflans nam 2,6 milljörðum á síðasta ári samanborið við 2,4 milljarða árið 2017.
Verðmæti afla, sem seldur var til eigin vinnslu innanlands árið 2018, nam 70,8 milljörðum sem er um 56% af heildarverðmæti. Verðmæti sjófrysts afla nam 29,8 milljörðum og verðmæti afla, sem fór á fiskmarkaði til vinnslu innanlands , nam 19,5 milljörðum, eða um 15% af heildarverðmæti.
Í desember 2018 var aflaverðmæti 7,1 milljarður sem er 4,4% minna en í desember 2017. Samdráttur varð í öllum tegundaflokkum, aflaverðmæti botnfisks dróst saman um 2,3%, flatfisks um 14,4%, uppsjávartegundir um 13,1% og verðmæti skel- og krabbadýra var 24,2% lægra en árið 2017.
Hagtölur sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á gögnum um verðmæti fyrstu sölu landaðs afla sem Fiskistofa safnar saman samkvæmt frétt fr´Hagstofu Íslands.
Verðmæti afla 2017–2018 | ||||||
Milljónir króna | Desember | Janúar-desember | ||||
2017 | 2018 | % | 2017 | 2018 | % | |
Verðmæti alls | 7.452,5 | 7.126,4 | -4,4 | 109.953,3 | 126.277,1 | 14,8 |
Botnfiskur | 6.107,0 | 5.967,5 | -2,3 | 76.244,4 | 89.094,4 | 16,9 |
Þorskur | 4.033,7 | 3.938,9 | -2,4 | 48.716,9 | 55.787,7 | 14,5 |
Ýsa | 661,4 | 946,6 | 43,1 | 7.948,3 | 10.588,2 | 33,2 |
Ufsi | 519,7 | 507,2 | -2,4 | 6.428,4 | 7.945,1 | 23,6 |
Karfi | 610,4 | 412,8 | -32,4 | 8.836,7 | 10.208,5 | 15,5 |
Úthafskarfi | 0,0 | 0,0 | – | 333,3 | 218,8 | -34,3 |
Annar botnfiskur | 281,8 | 162,0 | -42,5 | 3.980,9 | 4.346,0 | 9,2 |
Flatfiskafli | 359,1 | 307,5 | -14,4 | 7.492,0 | 10.162,0 | 35,6 |
Uppsjávarafli | 935,0 | 812,4 | -13,1 | 23.777,9 | 24.405,2 | 2,6 |
Síld | 216,7 | 159,1 | -26,6 | 4.464,9 | 4.640,4 | 3,9 |
Loðna | 0,0 | 0,0 | – | 6.709,4 | 5.891,7 | -12,2 |
Kolmunni | 718,3 | 653,3 | -9,0 | 4.078,1 | 6.366,4 | 56,1 |
Makríll | 0,0 | 0,0 | – | 8.525,4 | 7.506,8 | -11,9 |
Annar uppsjávarafli | 0,0 | 0,0 | – | 0,0 | 0,0 | -98,3 |
Skel- og krabbadýraafli | 51,4 | 38,9 | -24,2 | 2.439,0 | 2.615,5 | 7,2 |
Humar | 0,0 | 0,0 | – | 833,6 | 567,5 | -31,9 |
Rækja | 21,5 | 9,9 | -53,8 | 1.231,0 | 1.489,2 | 21,0 |
Annar skel- og krabbadýrafli | 29,9 | 29,0 | -3,1 | 374,3 | 558,8 | 49,3 |
Annar afli | 0,0 | 0,0 | – | 0,0 | 0,0 | – |