Makrílkvótinn aukinn í 140.000 tonn
Samkvæmt reglugerð atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins er leyfilegur heildarafli í makríl 2019 alls 140.240 tonn. Til úthlutunar á grundvelli hlutdeilda eru 127.307 tonn. Þá verða 7.433 tonn boðin á skiptimarkaði síðar og 4.000 tonn verða boðin handfærabátum gegn gjaldi skv. sérstökum reglum. Þá eru 1.500 tonn framseld til rússneskra skipa skv. tvíhliðasamningi þjóðanna.
Á grundvelli reglugerðarinnar hefur Fiskistofa í dag úthlutað til bráðabirgða hlutdeildum í makríl og 80% aflamarks 2019 í samræmi við hlutdeildasetninguna.
Öllum hlutdeildum í makríl hefur verið úthlutað á skip á grundvelli veiðireynslu. Sérstaklega er bent er á að nokkur fjöldi skipa sem er ekki með gild veiðileyfi fær hlutdeildir. Í þeim tilvikum er aflamarki ekki úthlutað á skipin. Útgerðir þeirra fá leiðbeiningu frá Fiskistofu um hvaða valkosti þau eiga til að tryggja úthlutun aflamarks á grundvelli hlutdeilda þegar lokaúthlutun aflamarks fer fram.
Athygli er vakin á að ekki er heimilt að millifæra hlutdeildir eða aflamark í makríl fyrr en endanleg úthlutun hefur farið fram.
Útgerðir eru hvattar til að kynna sér forsendur úthlutunarinnar.
Frestur til að koma athugasemdum á framfæri við Fiskistofu vegna hennar er til 10. júlí 2019.
Fiskistofa mun eigi síðar en 10. ágúst 2019 senda útgerðum skipanna tilkynningar um endanlega aflahlutdeild skipa þeirra í makríl.
Hér að neðan má sjá aflastöðulista fyrir makríl þar sem fram kemur 80% úthlutunin á hvert skip ásamt flutningi skv. reglugerðinni á ónýttum aflaheimildum úr gamla pottakerfinu á fyrra ári. Þær falla undir dálkinn „Sérstakar úthlutanir“. Dálkurinn sem merktur er Fl (= flokkur) vísar til útgerðarflokks skipanna: A = aflamarksskip, K= krókaaflamarksbátur, -12 = strandveiðibátur.
Hér er krækja í gagnlegar upplýsingar fyrir útgerðir um makríl veiðar og veiðiheimildir fram til þessa:
Heildarupplýsingar um makrílafla íslenskra skipa, úthlutun og millifærslur 1996 til 2018
A- og B-flokkur aflahlutdeilda í makríl
Aflahlutdeild í makríl skiptist í tvo flokka, A- og B-flokk.
- Í A-flokki er hlutdeild úthlutað á grundvelli veiðireynslu með öðrum veiðarfærum en línu og handfærum.
- Í B-flokki er hlutdeild úthlutað á grundvelli veiðireynslu með línu og handfærum.
Listi yfir skiptingu hlutdeilda í makríl og skiptingu skipa í A- og B-flokk
Athygli er vakin á því að aflamark einstakra skipa í makríl finnst þegar farið er í gegnum „Finna skip“ á forsíðu vefjarins og valið er „Deilistofnar aflamark“ undir „Meiri upplýsingar“.
Á næstu dögum er von er á merkingu á síðunni „Um skip“ þar sem skipting hvers skips í A- eða B-flokk kemur fram þegar við á.
Sérstök úthlutun í makríl til handfærabáta gegn gjaldi
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur gefið út reglugerð sem heimilar að úthluta allt að 4.000 tonnum af viðbótaraflaheimildum í makríl ár hvert til skipa í B-flokki gegn greiðslu gjalds. Úthluta skal allt að 35 tonnum í senn. Eftir 15. september skal úthluta til skipa í A-flokki því sem eftir er gegn greiðslu gjalds.
Athygli er vakin á að eingöngu bátar í B-flokki geta sótt um úthlutun af þessu tagi. Þá er ekki hægt að sækja um úthlutun fyrr en viðkomandi bátur hefur nýtt 80% af því aflamarki sem hann fékk úthlutað á grundvelli hlutdeildar.
Fiskistofa auglýsir síðar nánari útlistun á hvernig staðið verður að þessari viðbótarúthlutun.