Skylt að hirða hrognin
Fiskistofa minnir á að skylt er að hirða hrogn samkvæmt reglugerð um nýtingu afla og aukaafurða. Þar segir m.a.: Fyrir öll skip gildir: Skylt er að hirða og koma með að landi öll þorsk- og ufsahrogn.
Nú er hrygningarfiskurinn byrjaður á ganga á slóðina og hrognafylling í honum verður stöðugt meiri. Hrognin eru verðmæt afurð hvort sem þau eru fryst eða söltuð og skila sínu í þjóðarbúið. Það gerir lifrin líka, enda er hún hirt og nýtt í landi í langflestum tilvikum.