Áslaug Eir sett fiskistofustjóri
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur sett Áslaugu Eir Hólmgeirsdóttur í embætti Fiskistofustjóra frá deginum í dag til 30. apríl 2020.
Áslaug Eir er sjávarútvegsfræðingur og hefur starfað hjá Fiskistofu í 12 ár þar sem hún er sviðstjóri yfir fiskveiðieftirliti. Hún hefur einnig verið staðgengill Fiskistofustjóra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir
Eyþór Björnsson sagði starfi sínu sem Fiskistofustjóri lausu fyrr á árinu og hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE).
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ráðherra skipar nefnd til að meta hæfni umsækjenda. Nefndin mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Umsækjendur um stöðuna eru eru:
- Admir Mrati, verkamaður
- Arnar Ágústsson, fyrsti stýrimaður
- Arnljótur Bjarki Bergsson, sjávarútvegsfræðingur
- Álfheiður Eymarsdóttir, stjórnmálafræðingur
- Bergur Elías Ágústsson, framkvæmdastjóri
- Davíð Jónsson, sjávarútvegsfræðingur
- Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, forstöðumaður
- Gísli Hrannar Sveinsson, stjórnunarfræðingur
- Gunnar Hrafn Hall, sjómaður og verkfræðingur
- Hreiðar Eiríksson, lögfræðingur
- Jóhann Friðberg Helgason, framkvæmdastjóri
- Njáll Ragnarsson, sérfræðingur
- Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri
- Reinhard Reynisson, framkvæmdastjóri
- Sigurður Jóhannesson, umhverfis- og auðlindafræðingur
- Svavar Halldórsson, ráðgjafi
- Svanhvít Pétursdóttir, viðskiptafræðingur
- Þórður Heimir Sveinsson, lögmaður
- Dr. Ögmundur Knútsson, ráðgjafi