Mikill vöxtur í pöntunum og sterkt sjóðstreymi

52
Deila:

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, segir að fjárhagur félagsins og sjóðsstreymi sé firna sterkt. Mótteknar pantanir hafi aldrei verið meiri. Tekjur hafi numið 302 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi og framlegð hafi verið 8,4%. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Marel um afkomuna á fyrsta fjórðungi þessa árs. Þar kemur jafnframt fram að Covid-19 faraldurinn hafi sett sitt mark á reksturinn.

„Á sama tíma og við höfum tryggt samfellu í rekstri Marel og viðskiptavina okkar, höfum við lagt höfuðáherslu á öryggi og velferð starfsfólks og fjölskyldna þeirra. Við höfum þurft að aðlaga okkur að nýjum veruleika, sýna útsjónarsemi og nýta tæknilausnir í enn meiri mæli en áður. Margt af því sem við gerum nú, verður til varanlegra breytinga til góðs. Sem dæmi bjóðum við nú upp á fjarstuðning í þjónustu og uppsetningum á tækjum, settum á laggirnar Marel Live, sem er nýr stafrænn vettvangur til að kynna vörur og þjónustu félagsins, og héldum aðalfund á tilsettum degi þar sem hluthafar gátu tekið þátt og kosið rafrænt,“ segir Árni Oddur og ennfremur:

„Fjárhagur og sjóðstaða félagsins er firnasterk. Framsækið vöruframboð og víðfeðmt sölu- og þjónustunet gera okkur kleift að sinna viðskiptavinum um heim allan á þessum umrótatímum. Mótteknar pantanir á fjórðungnum hafa aldrei verið hærri og nema 352 milljónum evra sem dreifðust vel á milli stærri verkefna, staðlaðra lausna og varahluta. Sterkt sjóðstreymi er að hluta til notað til að byggja markvisst upp öryggisbirgðir af íhlutum til framleiðslu og varahlutum til að tryggja stöðugt framboð og skamman afhendingartíma.

Tekjur námu 302 milljónum evra í fjórðungnum með 8,4% EBIT framlegð. Heimsfaraldurinn hefur aðallega haft áhrif á verkefni kjötiðnaðar með lakari nýtingu í framleiðslu í Kína, Þýskalandi og í Brasilíu vegna núgildandi varúðarráðstafana. Starfsemi í framleiðslu í Kína er nú komin upp í 90% afköst sem gefur góð fyrirheit um framhaldið, en of snemmt er að segja til um hvenær starfsemi verður með eðlilegum hætti í Þýskalandi og Brasilíu. Á sama tíma höfum við sýnt mikla útsjónarsemi í þjónustu við viðskiptavini. Enda þótt þjónustan hafi litast af heimsóknar- og ferðatakmörkunum, sáum við kröftugan vöxt í tekjum í sölu og afhendingu á varahlutum. Þjónustutekjur námu 41% af heildartekjum á fyrsta ársfjórðungi.

Kjúklingaiðnaðurinn, okkar stærsta og arðbærasta rekstrareining, fór inn í þetta ár með lága pantanabók. Sala á lausnum til kjúklingaiðnaðar var sérstaklega góð á fyrsta ársfjórðungi og förum við því inn í annan ársfjórðung með góða stöðu í pantanabók.

Á meðan fjölskyldur halda sig heima í skjóli fyrir heimsfaraldrinum snareykst spurn eftir matvælum í stórmörkuðum og netverslunum. Á sama tíma hefur neysla snarfallið á veitingastöðum. Þegar svo skyndilegar breytingar eiga sér stað þurfa fjölmargir viðskiptavinir okkar að aðlaga sig hratt að breyttu umhverfi, jafnt í framleiðslu og dreifingu, og fjárfesta í stöðluðum lausnum með skömmum afhendingartíma. Í samstarfi við Marel fá þeir fyrsta flokks viðhaldsþjónustu og styttri afhendingartíma á varahlutum og lausnum. Ég vil nota tækifærið og þakka starfsmönnum Marel, viðskiptavinum okkar, birgjum og öðrum samstarfsaðilum fyrir þá miklu og góðu vinnu sem átt hefur sér stað á þessum fordæmalausu tímum. Í sameiningu tryggjum við að matvælaframleiðsla, ein mikilvægasta virðiskeðja heimsins, sé órofin.“

Viðbrögð við COVID-19

„Marel setur velferð, öryggi og heilsu starfsfólks síns í fyrsta sæti og lítur ástandið sem skapast hefur í kjölfar útbreiðslu COVID-19 alvarlegum augum. Þörfin fyrir örugg og rekjanleg matvæli sem framleidd eru á hagkvæman og sjálfbæran hátt hefur aldrei verið meiri en nú. Marel er í flokki þeirra fyrirtækja sem eru talin í framlínu til að tryggja áframhaldandi matvælaframleiðslu í heiminum.

Í janúar var gripið til umfangsmikilla og ítarlegra öryggisráðstafana á öllum framleiðslustöðvum okkar til þess að tryggja samfellu í starfsemi. Síðan þá hefur verið starfrækt viðbragðsteymi innan Marel sem fylgist náið með útbreiðslu veirunnar og samræmir aðgerðir félagsins á heimsvísu. Þar hefur öryggi starfsfólks og daglegur rekstur verið í fyrirrúmi. Starfsstöðvum hefur verið skipt upp í minni hópa og enginn samgangur er á milli þeirra. Þá hefur verið tekið fyrir allar ónauðsynlegar heimsóknir inn á starfsstöðvarnar og þeir sem geta vinna nú að mestu heiman frá sér. Allar verksmiðjur Marel víða um heim eru opnar.

Til þess að tryggja getu Marel til að styðja við viðskiptavini sína hefur verið lögð mikil vinna í að byggja upp fjarstuðning. Með því móti er hægt að þjónusta og leiðbeina viðskiptavinum þrátt fyrir ferðatakmarkanir. Þar að auki hefur Marel markvisst byggt upp öryggisbirgðir af varahlutum og vörum sem renna hraðar í gegnum pantanabók til að tryggja framboð og sem stystan afhendingartíma. Uppsetning á tækjum og búnaði heldur áfram með uppteknum hætti þrátt fyrir örlítið lengri afhendingartíma og hærri kostnað vegna afhendingar,“ segir ennfremur í frétt um afkomuna frá Marel.

 

Deila: