Fullfermi á fjórum dögum

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði fullfermi eða 111 tonnum á Seyðisfirði á mánudag. Uppistaða aflans var þorskur og ufsi. Rúnar L. Gunnarsson skipstjóri segir að veitt hafi verið á hefðbundnum miðum skipsins.
„Við fengum aflann í Berufjarðarál, Hvalbakshalli og enduðum í Litladýpinu. Þetta voru fjórir dagar að veiðum. Á þessum tímum er allt í hægagangi hjá okkur eins og annars staðar í samfélaginu. Við förum einungis eina veiðiferð í viku og það verður haldið til veiða á ný klukkan átta í kvöld,“ segir Rúnar í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Ljósmynd Ómar Bogason.