Brim með mestar aflaheimildir

Litlar breytingar eru á hvaða fyrirtæki eru í efstu sætunum frá því sams konar upplýsingar voru birtar í september sl. í kjölfar úthlutunar aflamarks í upphafi nýs fiskveiðiárs. Brim og Samherji eru í tveimur efstu sætunum. Brim er með um 10,13% af hlutdeildunum en var í september með 10,44%. Samherji er með 7,02% en var í september með 7,10%. Samanlagt ráða þessi tvö stærstu útgerðarfyrirtæki landsins því yfir 17,15% af hlutdeildunum í kvótakerfinu. Í 3. til 5. sæti eru FISK-Seafood á Sauðárkróki (5,48%), Síldarvinnslan í Neskaupstað (5,22%) og Þorbjörn í Grindavík (4,80%).
Þegar skoðuð er krókaaflahlutdeild útgerða þá er röðin á stærstu útgerðunum þannig að Grunnur ehf í Hafnarfirði er með 4,51% krókaaflahlutdeildanna. Í öðru og þriðja sæti eru Stakkavík ehf. (4,09%) og Jakob Valgeir ehf. í Bolungarvík (4,07%).
Fiskistofa hefur eftirlit með því að yfirráð einstakra aðila yfir aflahlutdeildum fari ekki umfram þau mörk sem lög kveða á um. Í eftirfarandi töflum kemur fram staða aflaheimilda þeirra 100 útgerða sem réðu yfir mestum aflahlutdeildum 31. mars sl. eftir úthlutun aflamarks í deilistofnum á nýju almanaksári. Hefð er fyrir að bíða eftir úthlutun í loðnu á útmánuðum til þess að áhrif hennar skili sér inn í útreikninganna. Eins og alkunna er reyndist sú bið árangurslaus að þessu sinni. Sambærilegar upplýsingar koma einnig fram um þær 50 útgerðir sem ráða yfir mestum krókaaflahlutdeildum.
Á meðfylgjandi töflum eru hlutdeildir brotnar niður á kennitölur einstakra lögaðila, en ekki hefur farið fram skoðun á því hvort fyrirtæki teljist vera í eigu tengdra aðila skv. 13. gr. laga nr. 116/2006. Fiskistofa skoðar slík möguleg tengsl aðila sérstaklega á grundvelli þessara gagna.
Útreikningur á hlut einstakra fyrirtækja í öllum aflahlutdeildum fer fram á grundvelli 3. mgr. 13. gr. laga nr. 116/2006. Úthlutað aflamark fyrirtækis í hverri kvótategund á grundvelli hlutdeilda er reiknað til þorskígilda. Þorskígildin sem þannig eru eignuð hverju fyrirtæki eru síðan lögð saman. Hlutfall þorskígilda sem tilheyra fyrirtæki fæst með því að deila heildartölu úthlutaðra þorskígilda upp í þau þorskígildi sem tilheyra fyrirtækinu. Sú hlutfallstala sýnir hve stórt hlutfall hlutdeildir fyrirtækis eru af öllum hlutdeildum. Útreikningurinn til þorskígilda tekur til allra tegunda annarra en þeirra sem alfarið veiðast utan íslenskrar lögsögu en eru þó kvótabundnar, þ.e. þorskur í Barentshafi og rækja á Flæmingjagrunni eru ekki talin með.
Aflahlutdeild 31. mars 2019 – 100 stærstu
Krókaaflahlutdeild 31. mars 2019 – 50 stærstu
Hér má sjá til samanburðar töflur frá september 2019 yfir þær útgerðir sem þá réðu yfir mestum aflaheimildum:
Aflahlutdeild 1. september 2019 – 100 stærstu
Krókaaflahlutdeild 1. september 2019 – 50 stærstu
Fjöldi útgerða sem ráða yfir hlutdeildum
Fiskistofa hefur fylgst með fækkun útgerða sem ráða yfir hlutdeildum undanfarin ár. Frá fiskveiðiárinu 2005/2006 hefur þeim fækkað úr 946 í 446 nú í lok mars sl. eða um 500 útgerðir, en milli ára hefur þeim fjölgað aftur vegna úthlutunar á makríl og eru þær nú orðnar 693. Á bak við þessa fjölgun liggja ekki miklar hlutdeildir því að margar útgerðir sem eru nýjar á listanum eru þar vegna þess að þær ráða fyrir örlitlum hlutdeildum í makríl. Handhafar bæði aflamarkshlutdeilda og krókaaflamarkshlutdeilda, sem og makrílhlutdeilda á A- og B-flokki, eru hér taldir með.
Reglur og eftirlit með hámarkshlutdeildum
Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða má heildaraflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra eða tengdra aðila ekki fara yfir 12% af samanlögðu heildarverðmæti aflahlutdeilda allra tegunda. Þá má aflahlutdeild í þorski ekki fara yfir 12%. Í ýsu, ufsa, grálúðu, steinbít, síld og loðnu má hún ekki fara yfir 20% og í karfa ekki yfir 35%.
Heildarkrókaaflahlutdeild einstakra eða tengdra aðila má ekki fara yfir 5% af samanlögðu heildarverðmæti krókaaflahlutdeilda. Þá má krókaaflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra eða tengdra aðila ekki fara yfir 4% í þorski og 5% í ýsu.
Að þessu sinni eru ekki nein tilfelli þar sem fyrirtæki voru yfir hámarkinu.
Þeim sem vilja kynna sér frekar reglur um hámarksaflahlutdeildir er bent á ákvæði 13. og 14. gr. laga um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 með síðari breytingum.