Marel kaupir eigin hluti

15
Deila:

Í viku 18 keypti Marel hf. 1.251.556 eigin hluti að kaupverði 775.945.836 kr. Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 10. mars 2020 og var gerð í samræmi við þágildandi heimild aðalfundar Marel hf. þann 6. mars 2019 til kaupa á eigin bréfum, sem endurnýjuð var á aðalfundi félagsins þann 18. mars 2020.

Marel hf. átti 17.587.828 eigin hluti fyrir viðskiptin og átti að þeim loknum 18.839.384 eigin hluti eða sem nemur 2,44% af útgefnum hlutum í félaginu.

Marel hf. hefur keypt samtals 8.065.570 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,05% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 4.415.066.934 kr.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hlutum eða sem nemur 3,2% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 11. mars 2020 til og með 4. september 2020.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052.

 

Deila: