Tilkynning frá Samherja hf.

34
Deila:

Samherji sendi frá sér í gær eftirfarandi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Kjarnans og Ríkisútvarpsins um framsal hlutafjáreign aðaleigenda fyrirtækisins til barna sinn:

Samherji hf. vill koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri vegna umfjöllunar í dag um breytt
eignarhald í fyrirtækinu.

Aðaleigendur Samherja hf. hafa framselt hlutafjáreign sína í fyrirtækinu til barna sinna eins og
greint hefur verið frá í fjölmiðlum. Var þetta gert annars vegar með sölu hlutafjár og hins vegar
með fyrirframgreiddum arfi.
Undirritaður var kaupsamningur, vegna þeirra hlutabréfa sem voru seld, í ágúst 2019. Var
samningurinn háður ýmsum fyrirvörum og gátu kaupin ekki gengið í gegn fyrr en þeim hafði
verið aflétt. Gekk það svo eftir hinn 1. nóvember síðastliðinn og tilkynnt Samherja hf.
samdægurs. Baldvin Þorsteinsson, einn eigenda þess félags sem keypti hlutabréfin, er búsettur
í Hollandi og hefur þar lögheimili. Af þeirri ástæðu telst hann vera erlendur aðili í skilningi laga
um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Vegna skýrra fyrirmæla sömu laga var Samherja
hf. skylt að tilkynna atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu um fjárfestingu Baldvins. Var
tilkynningin send ráðuneytinu mánudaginn 4. nóvember sem var fyrsti virki dagurinn eftir að
Samherja hf. bárust upplýsingar um að kaupin hefðu gengið í gegn.
Vefmiðillinn Kjarninn fjallaði í dag um þetta bréf til ráðuneytisins undir fyrirsögninni Tilkynnt
um erlenda fjárfestingu í Samherja nokkrum dögum fyrir Kveiksþáttinn. Gerði Ríkisútvarpið
sér svo mat úr þessari sömu umfjöllun í hádegisfréttum. Var framsetning beggja miðla með
þeim hætti að tilgangurinn var augljóslega sá að gera breytingar á eignarhaldi Samherja hf.
tortryggilegar með því að gefa í skyn að þær tengdust fjölmiðlaumfjöllun um starfsemina í
Namibíu.
Eins og áður hefur komið fram stóð undirbúningur að breytingum á eignarhaldi Samherja hf.
yfir síðastliðin tvö ár en áformin voru formlega kynnt stjórn félagsins um mitt ár 2019. Þá var
áðurnefndur kaupsamningur undirritaður í ágúst sama ár. Samherji hf. fékk fyrst vitneskju um
efnislegt inntak fyrirhugaðrar umfjöllunar Ríkisútvarpsins með bréfi hinn 25. október 2019. Það
er því augljóst að þessir tveir atburðir eru algjörlega ótengdir.
Að öllu þessu virtu er það býsna ómaklegt af vefritinu Kjarnanum að gefa í skyn að áðurnefnd
tilkynning til atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins tengist umfjöllun Ríkisútvarpsins frá 12.
nóvember síðastliðnum. Þá ber að halda því til haga að starfsemi Samherja í Namibíu var í
félögum undir Samherji Holding ehf. en engin breyting hefur orðið á eignarhaldi þess félags.

Deila: