Nýsköpun til áhrifa

Ársskýrsla Marel fyrir árið 2020 er komin út. „Í gegnum starfsmenn okkar um heim allan tengjumst við viðskiptavinum okkar, samstarfsaðilum, hluthöfum og samfélaginu öllu sterkum böndum. Þegar heimsfaraldur skall á með fullum þunga lögðum við höfuðáherslu á að styrkja þessi sambönd og efla samskipti. Í krefjandi aðstæðum tryggðum við öryggi starfsfólks okkar og samstarfsaðila og lögðum okkar lóð á vogarskálarnar til að halda matvælakeðjunni gangandi, en hún er ein mikilvægasta virðiskeðja í heimi. Í því stóra verkefni voru sambönd, samskipti og samheldni lykillinn að árangri,“ segir í frétt Marel um ársskýsluna.
„Alþjóðlegt sölu- og þjónustunet Marel í yfir 30 löndum gerði það að verkum að við gátum stutt við viðskiptavini okkar og tryggt stöðugt framboð af vörum og þjónustu í krefjandi aðstæðum. Snjallar framleiðslulausnir okkar tryggja aukna sjálfvirkni og betri nýtingu á verðmætu hráefni. Stafrænar lausnir okkar veita viðskiptavinum mikilvæga innsýn og upplýsingar sem gera þeim kleift að umbylta og aðlaga framleiðslu sína að breyttum þörfum neytenda í heimsfaraldri,“ segir í fréttinni.
Í ársskýrslunni má finna yfirgripsmikla umfjöllun um Marel sem er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á alifuglum, kjöti og fiski. Ársskýrslan er aðgengileg á stafrænu formi, þar sem meðal annars er að finna margmiðlunarefni, gagnvirkar töflur og gröf, og einnig sem PDF skjal á marel.com/ar2020.