Sjálfkjörið i stjórn Brims

Eftirtaldir einstaklingar bjóða sig fram í kjöri til stjórnar Brims hf. á aðalfundi félagsins 25. mars 2021.
- Anna G. Sverrisdóttir
- Hjálmar Þór Kristjánsson
- Kristján Þ. Davíðsson
- Kristrún Heimisdóttir
- Magnús Gústafsson
Þar sem frambjóðendur eru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem á að kjósa á fundinum og samsetning stjórnar fullnægir ákvæðum laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll er sjálfkjörið í stjórnarsætin fimm.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur liggja frammi á skrifstofu félagsins, í meðfylgjandi viðhengi og á heimasíðu félagsins.