Hoffell með mest af kolmunna

10
Deila:

Kolmunnaveiðum íslenskra skipa að vori fer nú senn að ljúka. Það styttist í sjómannadag, en þá verða skipin að vera í landi. Samkvæmt aflastöðulista Fiskistofu frá því í morgun, er aflinn á árinu orðinn 135.550 tonn, en leyfilegar heildarafli er um 202.000 tonn. Gera má ráð fyrir að skipin hefji makrílveiðar eftir sjómannadag.
Aflahæstu skipin núna eru samkvæmt listanum Hoffell SU með rúm 14.000 tonn, Beitir NK með um 13.000 tonn og Víkingur með 11.600 tonn. Þrjú skip eru með meira en 20.000 tonna kvóta eftir millifærslur. Það eru Börkur NK með 23.386 tonn, Beitir NK með 22.661 tonn og Hoffell SU með 20.183 tonn.

Á síðustu vertíð varð heildaraflinn 238.859 tonn og fóru þá fjögur skip yfir 20.000 tonnin. Það voru Venus NS með 22.954 tonn, Börkur NK með 22.515 tonn, Bjarni Ólafsson AK 22.316 tonn og Beittir með 21.791 tonn.

Deila: