Færeyingar auka hlutdeild sína í makríl um 50%

34
Deila:

Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja hefur ákveðið í samráði við Lögþingið ákveðið makrílkvóta Færeyinga á þessu ári. Kvótinn verður 167.048 tonn, sem svarar til 19,6% af lefilegum heildarafla upp á 852.284 tonn.

Færeyingar fara í þessum málum í kjölfar Norðmanna, sem ákváðu einhliða að auka hlutfall sitt úr heildaraflanum. Þannig auka Færeyingar hlutdeild sína úr 12,6% í 19,6%, um 50% eða um 6 prósentustig.

Jacob Vestergaard segir að hann vonist til að samningaviðræður strandríkjanna komist aftur á skrið í haust og samkomulag um nýja skiptingu milli þeirra náist í haust. Samningaviðræðurnar þá verða undir forsæti Færeyinga.

Staðan í þessum málum er sú að nú er ekkert samkomulag í gildi. Fyrra samkomulag féll út gildi um síðustu áramót, en þar var Íslandi haldið utan þess. Þrátt fyrir þessa stöðu, hefur Ísland ákveðið að halda sig við sama hlutfall úr heildinni og á undanförnum árum, eða um 16,5%.

Deila: