Enn eykst útflutningsverðmæti sjávarafurða

16
Deila:

Verðmæti vöruútflutnings í maí 2021 jókst um 8 milljarða króna, eða um 15%, frá maí 2020, úr 53,2 milljörðum króna í 61,2 milljarða. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 4,3 milljarða eða um 18%, munar þar mestu um aukið verðmæti loðnuhrogna. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 2,1 milljarð króna eða 8,3% samanborið við maí 2020 og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls og útflutning á lækningatækjum.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júní 2020 til maí 2021, var 656,7 milljarðar króna og hækkaði um 52,6 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 8,7% á gengi hvors árs.. Iðnaðarvörur voru 47% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði og var verðmæti þeirra 4% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 44% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 13% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 7,7 milljarða, eða 30,2%, á sama tímabili eða um 5% af heildarútflutningi.

Deila: