Mestur umframafli á svæði A

12
Deila:

Leyfi til strandveiða hafa verið gefin út til 675 báta og er landaður afli strandveiðibáta  miðvikudaginn 30. júní samtals 6.604.389 kg., sem er 57.17% af þeim heimildum (11.100 tonn) sem úthlutað er til strandveiða á fiskveiðiárinu 2020/2021.

Á strandveiðum má hver bátur landa að hámarki 650 kg. af slægðum afla í þorskígildum talið í hverri veiðiferð. Í áttundu viku strandveiða frá 28. júní – 2. júlí lönduðu 246 skip afla umfram leyfilegan heildarafla í veiðiferð, samtals 10.329 kg.

Meðfylgjandi myndi sýnir yfirlit yfir umframafla í sjöundu viku. Bláu súlurnar sýna þau skip sem lönduðu alls 100 kg. eða meira yfir leyfilegt magn í vikunni. Gráu súlurnar sýna heildarmagn umframafla fyrir hvern löndunardag en umframafli var mestur mánudaginn 28. júní sl. eða 4.103 kg.

Grænu súlurnar sýna umframafla eftir svæðum og sem fyrr kemur mestur umframafli á land á svæði A eða tæp fimm tonn.

Ef skoðað er yfirlit yfir strandveiðar í júní mánuði má sjá að umframafli var samtals 44.802 kg. á tímabilinu. Alls lönduðu 414 kg. skip yfir 100 kg. eða meira. Mestur umframafli var á svæði A, alls 27.777 kg. og var mestum umframafla landað á Patreksfirði 7.064 kg.

Gögn sem Fiskistofa birtir byggja á fyrirliggjandi aflaskráningu á hafnarvog. Framangreindar upplýsingar eru birtar með þeim fyrirvara að skráning á hafnarvog sé lokið.

Deila: