Góður afli og einmuna blíða

„Aflinn var góður og svo vorum við svo heppnir að það var nánast einmuna blíða allan tímann. Það var logn og þegar best lét fór hitinn í meira en 30 gráður. Þetta er hins vegar gríðarlega löng sigling. Við vorum rétt tæpa fimm sólarhringa að sigla norður í Barentshaf og mér sýnist að heimferðin taki svipaðan tíma.”
Þetta sagði Eyþór Atli Scott, skipstjóri á frystitogaranum Vigra RE, í samtali á heimasíðu Brims á föstudag, en Vigri var þá kominn á Strandagrunn á leiðinni til Reykjavíkur. Um 40 mílur á eftir Vigra var frystitogarinn Örfirisey RE en bæði skipin, sem Brim gerir út, hafa að undanförnu verið að veiðum í Barentshafi.
,,Við vorum 30 daga á veiðum og vorum með alls 1.030 tonn upp úr sjó. Uppistaða aflans var þorskur en við vorum með nokkra tugi tonna af ýsu og hlýra. Afli Örfiriseyjar var meiri enda getur skipið dregið tvö troll samtímis.”
Að sögn Eyþórs Atla hófust veiðar svo til á þeim punkti þar sem rússneski eftirlitsmaðurinn var tekinn um borð.
,,Við unnum okkur svo austur eftir og vorum lengst af á veiðum á Gæsabankanum. Við lukum veiðum svo á svokölluðum Kildenbanka,” segir Eyþór Atli en um aflann hefur hann annars þetta að segja.
,,Þorskurinn er af mun blandaðri stærð en við höfum átt að venjast og það er nokkuð ljóst að yngri árgangar eru að koma inn í veiðina.”
Að sögn Eyþórs Atla voru tvö önnur íslensk skip á slóðinni, Arnar HU og Blængur NK. Góð samvinna var á milli skipstjórnarmanna og segir Eyþór Atli slíka samvinnu skila mjög góðum árangri.
,,Það hefur mjög margt breyst frá því að maður byrjaði í Barentshafinu. Rússarnir eru farnir að gera út mjög stóra og öfluga togara og það eru fleiri en áður um hituna,” segir Eyþór Atli Scott.
Bæði skipin komu til hafnar á laugardag.