Á Vestfjarðamiðum í allt sumar

9
Deila:

Ísfisktogarinn Helga María AK hefur verið að veiðum á Vestfjarðamiðum í allt sumar og hafa aflabrögð verið með ágætum að sögn Friðleifs Einarssonar (Leifs) skipstjóra. Þetta eru mikil viðbrigði frá nokkrum síðustu sumrum þegar skipin þurftu að fara norður fyrir land til að fá afla vegna ördeyðu á Vestfjarðamiðum.

Helga María lét úr höfn í Reykjavík í gær en aflinn í síðustu veiðiferð var um 170 tonn. Uppistaða aflans var þorskur en einnig veiddist töluvert af karfa. Aðrar tegundir voru ufsi og ýsa.

,,Við byrjuðum á grunnslóðinni, Látragrunni og þar um kring, tókum svo karfaskammtinn okkar í Víkurálnum og enduðum svo í þorski á Kögurgrunni,” segir Leifur í samtali á heimasíðu Brims,  en hann segir ufsann hafa gert vart við sig af og til.

,,Við reynum að forðast ýsuna eftir megni og svo er karfi alls staðar. Reyndar hefur karfinn verið að gefa eftir á Halnum en þangað var ekki farandi fyrr í sumar vegna mikillar karfagengdar. Það hefur ekki verið mikið af fiski í kantinum norður af Patreksfirði nú seinni partinn í sumar en það á væntanlega eftir að lagast.”

Nú líður að lokum kvótaársins en Leifur býst ekki við miklum áherslubreytingum þótt nýtt kvótaár gangi í garð.

,,Markaðurinn ræður veiðum og vinnslu og við náum í þann afla sem vantar hverju sinni,” segir Friðleifur Einarsson.

Deila: