Ný Cleopatra 35 makrílveiðibátur til Bergen í Noregi

12
Deila:

Jimmy Bjorøy útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 35 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Jimmy verður sjálfur skipstjóri á bátnum. Nýji báturinn heitir Tomina. Báturinn er 10.65 metrar á lengd og mælist 11brúttótonn. 

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 520 hestöfl tengd frístandandi ZF325IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Simrad og Olex. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til makríl og netaveiða.  Handfærarúllur eru frá DNG. Netabúnaður kemur frá Rapp í Noregi. Lest bátsins er sérútbúin til að lesta makríl um borð í tveimur aðskildum rýmum sem auðveldar fiskidælingu úr lestinni.  Lestin rúmar 15 380 lítra fiskikör. 

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking. Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.
Báturinn kominn til Noregs hefur þegar hafið veiðar.

Deila: