Komið að lokum strandveiða

11
Deila:

Að öllu óbreyttu verða strandveiðar bannaðar frá og með morgundeginum, 19. ágúst. Fiskistofa metur það svo að þá verði leyfilegum þorskafa náð.

Viðmiðunarafli í þorski á strandveiðunum er 11.171 tonn og alls 12.271 tonn af óslægðum botnfiski. Fyrr í mánuðinum jók sjávarútvegsráðherra þorskveiðiheimildir  um 1.171 tonn. Þar var um að ræða óráðstafað magn sem kom til á skiptimarkaði í skiptum fyrir makríl og fleiri tegundir.

Landsamband smábátaeigenda hefur farið fram á meiri heimildir til að hægt sé að halda veiðunum áfram út mánuðinn, en ráðherrann telur sig ekki hafa heimildir til þess.

Deila: