Langreyður á „perunni“

16
Deila:

Þegar malarflutningaskipið Nordfjord kom að Hvaleyrarbakka í Hafnarfjarðarhöfn fyrr í vikunni, urðu hafnarstarfsmenn varir við að eitthvað torkennilegt lá utan á perustefni skipsins.  Í ljós kom að það var hvalur, sem skipið hafði siglt á úti á Faxaflóa og borið með sér á perunni alla leið í höfn. 

Í fyrstu var talið um um hrefnu væri að ræða en við nánari skoðun sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar, sem sem eru með sínar höfuðstöðvar við hafnarbakkann í Hafnarfirði, kom í ljós að hér var langreyður á ferðinni, um 17 metra langur.

Hvalinn rak frá malarskipinu undan stífri austanátt inn í grjótgarðinn þar sem flotkvíin liggur.  Erfitt var að komast að hvalnum, í bröttum grjótgarðinum,  en með aðstoð félaga úr björgunarsveit Hafnarfjarðar tókst að koma tógi á hvalinn.  Þá tóku sérfræðingur Hafrannsóknastofnunar sýni úr hvalnum og honum síðan sökkt á sínum fyrri heimaslóðum.

Deila: