Aflaverðmæti nam rúmum 78 milljörðum króna á fyrri hluta árs 2021

8
Deila:

Verðmæti afla við fyrstu sölu var rúmlega 78 milljarðar króna á tímabilinu janúar til júní 2021 sem er aukning um 10% miðað við fyrri hluta ársins 2020. Verðmæti loðnuaflans var rúmir átta milljarðar króna sem leiddi til þess að verðmæti uppsjávarafla var ríflega tvöfalt meira en á sama tíma fyrir ári og nam alls rúmum tólf milljörðum. Verðmæti botnfisktegunda á fyrstu sex mánuðum ársins var rúmir 60 milljarðar sem er 2% aukning miðað við sama tímabil í fyrra samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands.

Afli og aflaverðmæti fyrstu sex mánuði 2020-2021
Tonn/milljónir krónaAflamagn, janúar-júníAflaverðmæti, janúar-júní
 20202021%20202021%
Samtals460.188508.2231071.17778.41110
Eftir mánuðum
janúar35.79258.848647.47110.01934
febrúar51.66476.1614711.97314.91625
mars95.419103.412814.85518.65326
apríl88.859114.4842912.74812.7420
maí125.948107.318-1513.09412.362-6
júní62.50548.000-2311.0359.720-12
Eftir fisktegund
Botnfiskur247.507262.861659.13560.0392
Þorskur150.949152.787140.34239.507-2
Ýsa24.45729.088195.7587.51430
Ufsi26.08632.865263.8694.75923
Karfi26.09125.889-16.1445.302-14
Annar botnfiskur19.92522.231123.0222.958-2
Flatfiskafli12.04813.320115.5095.150-7
Uppsjávarafli198.728228.988155.93312.387109
Síld3.2101.965-39135114-15
Loðna070.72508.218
Kolmunni187.480152.054-195.3683.827-29
Makríll8.0374.239-47430228-47
Annar uppsjávarafli0500
Skel- og krabbadýraafli1.9063.0446060083439
Humar13897-30141112-21
Rækja1.4352.3536441966358
Annar skel- og krabbadýrafli33259479405947
Annar afli01100
Eftir tegund löndunar
Bein viðskipti339.430391.3551540.11247.10217
Á fiskmarkað46.16650.7941010.95812.50014
Sjófrysting50.27950.892116.50314.921-10
Í gáma til útflutnings11.40412.997143.0883.46412
Önnur löndun12.9082.18612351742575
Deila: