Sealaska kaupir hlut í íslensku fyrirtækjunum IceMar og AG Seafood

13
Deila:

Bandaríska sjávarútvegfyrirtækið Sealaska í Juneau, í Alaska hefur keypt hlut í tveimur íslenskum sjávarútvegsfyrirtækum og selt Orca Bay Seafood, sem staðsett er í Seattle. Sealaska varð til viðð samruna við Orca Bay 2017, en selur fyrirtækið nú til fyrri eigenda. Þetta kemur fram á fréttavefnum Seafood Source.

Sealaska birti tilkynningu þess efni fyrsta október og jafnframt að það hefur keypt 60% hlutafjár í IceMar í Keflavík og 25% í AG Seafood í Sandgerði. Það fyrrnefnda er útflutningsfyrirtæki en AG Seafood vinnur þorsk, ýsu og flatfiski

Sealaska segir að með þessum kaupum á íslensku fyrirtækjunum  fái það aðgang íslenskum gæðum og þau séu liður í því að stuðla að sjálfbærni og svara vaxandi eftirspurn eftir hágæða afurðum úr sjálfbærum veiðum. Fyrirtækið sé í sjávarútvegi því það sé öflug leið til að stuðla að betri umgegni um auðlindir hafsins. Sótspor matvæla úr sjávarútvegi sé aðeins brot af sótspori matvæla sem framleidd séu á landi. Mikill vöxtur á framboði kældra sjávarafurða sé lykillinn að matarborðum neytenda.

Gunnar Örlygsson stofnaði IceMar 2003 og AG Seafood 2008 ásamt Arthur Galvez og munu þeir halda áfram að stýra fyrirtækjunum.

Kaup Sealaska  koma í kjölfar kaupa á New England Seafood í október 2020 og eru til að styrkja stöðu þess og áherslu á markaði fyrir hágæða kældan fisk og fiskafurðir. Kaupin auki getuna til að starfa á alþjóðlegum mörkuðum fyrir fyrir afurðir úr þeim fiskveiðum sem er best stjórnað. Með þessi fyrirtæki sameinuð  og fleiri muni möguleikar til vaxtar verða miklir.

Gunnar segir að þessi samvinna sé spennandi tækifæri fyrir íslensku fyrirtækin til að styrkja þjónustu þeirra og opna leiðir inn á nýja markaði í Evrópu og Norður-Ameríku. Þeir séu stoltir af fiskveiðum og vinnslu á heimsmælikvarða á Íslandi. Það sé mikilvægt að leggja sitt að mörkum til að stuðla að „heilbirgðari höfum“ og afurðirnar frá Íslandi geri það. Það sé einnig mjög gott að taka höndum saman við fyrirtæki sem hafi ástríðu fyrir framleiðu hágæða afurða úr sjálfbærum veiðum.

Deila: