Hoffell með mest af kolmunna

12
Deila:

Nokkur skip eru byrjuð að þreifa fyrir sé í kolmunnaveiðum í haust. Leyfilegur heildarafli á þessu ári er 202.121 tonn. Aflinn er orðinn 151.101 tonn og því annað eins óveitt, eða fjórðungur veiðiheimildanna. Gera má ráð fyrir því að þegar veiðum á síld verður lokið í haust, fari flotinn á kolmunna. 17 skip hafa stundað beinar veiðar á kolmunna í ár.

Átta skip hafa landað 10.000 tonnum af kolmunna eða meiru. Aflahæsta skipið er Hoffell SU með 17.248 tonn. Næsta skip er Beitir NK með 16.918 tonn og í þriðja sætinu er Vilhelm Þorsteinsson EA með 12.629 tonn.

Þar á eftir koma Víkingur AK með 11.619 tonn, Venus NS með 11.530 tonn, Börkur II NK með 11.182 tonn, Aðalsteinn Jónsson SU með 10.936 tonn og Jón Kjartansson SU með 10.746 tonn.

Deila: