Ísland braut gegn reglum EES í fiskeldismáli

Eftirlitsstofnun EES-samningsins (ESA) hefur komist að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hafi gerst brotlegt við átta greinar í reglum EES um mat á umhverfisáhrifum þegar það breytti lögum um fiskeldi í október 2018, en ekki fjórar eins og kom fram í bráðabirgðaúrskurði frá árinu 2020. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
Brotin felast í að útiloka almenning frá umfjöllun um bráðabirgðaleyfin og í að gera almenningi ókleift að kæra þau. Sömuleiðis eru brotin á ákvæði um að skyldu til að gilt umhverfismat liggi fyrir þegar veitt eru rekstrar- og starfsleyfi fyrir leyfisskyldar framkvæmdir og starfsemi. Brotin eiga við greinar 2, 4-9 og 11 í Evróputilskipun um umhverfismat
Þá átelur ESA íslenska ríkið og sérstaklega fyrrverandi umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmund Inga Guðbrandsson, og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristján Þór Júlíusson, fyrir að bregðast ekki við bráðabirgðaúrskurðinum, fyrir að nota hin röngu lög til þess að veita starfs- og rekstrarleyfi til fiskeldisfyrirtækja án umhverfismats og fyrir að gera brotin verri með aðgerðaleysi sínu þegar leyfin voru ekki afturkölluð.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Landvernd. Fjallað var um málið í Fréttablaðinu í dag en þar kemur fram að íslenska ríkið hefur tvo mánuði til að bregðast við þessu og breyta lögum sem sett voru árið 2018. Ef þau gera það ekki verða þau dregin fyrir EFTA dómstólinn í annað sinn á stuttum tíma.
Ekki brot á fjórum greinum, heldur átta
Í fréttatilkynningu Landverndar kemur fram að í bráðbirgðaúrskurði ESA um málið frá því í apríl 2020 hafi þau komist að því að íslenska ríkið hafi gerst brotleg við fjórar greinar, en núna í lokaúrskurði sínum er niðurstaðan sú að íslenska ríkið gerðist brotlegt við átta greinar EES reglna um umhverfismat.
„Með hinum ólögmætu ákvæðum í íslenskum lögum frá í október 2018 var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heimilað að gefa út bráðabirgðarekstrarleyfi til 20 mánaða til fiskeldisfyrirtækja. Ekki er gert ráð fyrir því að slík bráðabirgðaleyfisveiting fari í umhverfismat eða að almenningur og samtök almennings geti komið sjónarmiðum sínum að áður en leyfi er veitt. Lögin útiloka enn fremur að leyfisveitingin sé kærð til óháðs og hlutlauss aðila á borð við úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála,“ segir í fréttatilkynningu Landverndar.
Fram kemur í bréfi ESA um málið að ný lög um mat á umhverfisáhrifum sem tóku gildi 1. september 2021 taki ekki á brotum Íslands en Landvernd hefur einnig kvartað til ESA vegna þessara nýju laga sem þau segja ekki uppfylla ákvæði EES samningsins þegar kemur að umhverfismati sem grundvelli ákvarðanatöku í umhverfismálum, hlutleysi leyfisveitenda og markmiðum um hátt verndarstig umhverfisins.
Breyttu lögum samdægurs
Forsaga málsins er sú að í október 2018 breytti Alþingi lögum um fiskeldi með frumvarpi sem samþykkt var samdægurs og með afar takmörkuðum umræðum. Samkvæmt fréttatilkynningu Landverndar kvörtuðu þau um mánuði síðar til ESA vegna lagabreytinganna og sendu kvörtun ásamt sex öðrum umhverfisverndarsamtökum til eftirlitsnefndar Árósasamningsins í febrúar árið 2019 sem enn er til meðferðar hjá nefndinni.
Í lok tilkynningar Landverndar segir að EES-reglur geri ráð fyrir aðkomu almennings við ákvarðanatöku við umhverfismat í samræmi við ákvæði Árósasamningsins sem Ísland hefur innleitt. Þau segja að reglurnar feli ekki aðeins í sér lýðræðislegan rétt almennings heldur stuðli þær líka að faglegri og skynsamari ákvarðanatöku til langs tíma.
„Það er því allra hagur að farið sé eftir reglum um umhverfismat og aðkomu almennings að opinberri ákvarðanatöku. Án aðkomu almennings eru áhrif hagsmunaaðila á ákvarðanatöku í umhverfismálum mjög sterk og mikil hætta á því að hátt verndarstig umhverfisins verði ekki meginmarkmið heldur efnahagslegur ábati hagsmunaaðila.“