Unga fólkið fræðist um sjávarútveginn

Sjávarútvegsskóli unga fólksins er haldinn á Ísafirði í fyrsta sinn nú í þessari viku. Skólanum er ætlað að fræða ungmenni á aldrinum 14-16 ára um sjávarútveg og fiskeldi. Kennsla fer þannig fram að tveir útskrifaðir nemendur úr sjávarútvegsfræði Háskólans á Akureyri sjá um kennslu, það verða fyrirlestrar, farið í heimsókn í sjávarútvegsfyrirtæki – fiskeldi, gestafyrirlesarar úr fyrirtækjum á svæðinu. Einnig verður farið í leiki og spurningakeppnir. Kennsla á Ísafirði hefst á þriðjudag og kennslu lýkur á föstudegi.
Í næstu viku verður farið í Vesturbyggð/Tálknafjörð og kenndur Fiskeldisskóli unga fólksins með aðstoð Arnarlax, Arctic fish- Odda hf þar verður einnig farið í heimsókn til fyrirtækjanna og fengnir gestafyrirlesarar . Kennt verður á Tálknafirði og hefst kennsla á mánudagsmorgni og lýkur á fimmtudag. 21. júlí.
Þetta er samvinnuverkefni vinnuskóla sveitarfélaga, fyrirtækja í sjávarútvegi og fiskeldi og Sjávarútvegsmiðstöðvar Háskólans á Akureyri.
Í sumar hefur skólinn verið kenndur á Austfjörðum , á Norðurlandi, í Reykjavík.