Sækja þarf um sérveiðileyfi

Fiskistofa vekur er athygli á því að sækja þarf sérstaklega um öll sérveiðileyfi fyrir hvert fiskveiðiár.
Núgildandi sérleyfi falla úr gildi þann 31. ágúst nk.
Vegna komandi fiskveiðiárs 2022/2023 þarf að sækja sérstaklega um eftirtalin leyfi og er það gert í Ugga, þjónustugátt Fiskistofu
- Dragnótarveiðileyfi
- Leyfi til veiða á kúfskel til manneldis *
- Leyfi til veiða á beitukóngi *
- Leyfi til veiða á kröbbum
- Leyfi til frístundaveiða (Skilyrði útgáfu leyfis er að rekstraraðili báts hafi ferðaskipuleggjandaleyfi Ferðamálastofu og þeir bátar sem hyggjast veiða á sjóstöng án fénýtingar aflans þurfa farþegaleyfi Samgöngustofu)
* Með umsókn um stjörnumerkt leyfi skal fylgja samningur um vinnslu í landi eða jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er að ræða. Í báðum tilfellum þarf staðfesting frá MAST að fylgja um að viðkomandi vinnsla hafi gilt vinnsluleyfi frá MAST.