Færeyjar og Noregur semja um aðgang fyrir makrílveiðar

Færeyjar og Noregur hafa samið um gagnkvæman aðgang þjóðanna að lögsögu hvorrar annarrar. Samkomulagið tekur gildi í dag. Samkvæmt því mega skipa frá hvorri þjóð fyrir sig sækja 10.000 tonn af makríl af eigin kvóta í lögsögu hvors annars það sem eftir lifir af árinu.
Einnig var samkomulag um að makríl sem veiðist samkvæmt því megi landa hvort sem er í Færeyjum eð Noregi. Það verður þó skilyrði, að makríll sem fer á markað skuli fara í gegnum sölukerfi Síldarsamlags Noregs, Norges Sildesalgslag.