Samningalota um skiptingu heimilda í uppsjávarfiski

40
Deila:

Nú er að hefjast samningalota strandríkja við Norðaustur-Atlantshafið. Ríkin eru Bretland, Evrópusambandið, Færeyjar, Grænland, Ísland, Noregur og Rússland. Viðfangsefnið er skipting veiðiheimilda í norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna milli ríkjanna.
Í frétt frá færeyska sjávarútvegráðuneytinu er sagt frá því að í dag verði fundað um kolmunna og síld. Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag verður fjallað um síld. Fundirnir eru allir í London.
Færeyingar eru í forsæti í þeim þætti sem fjallar um síld og kolmunna, eftir að Bretar óskuðu þess að Færeyjar yfirtæki formennsku sína eftir útgönguna úr ESB. Bretar eru engu að síður með formennsku í viðræðunum um makrílinn. Á fimmtudag hefjast tvíhliða undirbúningsviðræður Færeyja og Bretlands um gagnkvæm fiskveiði réttindi. Fundur um þau verður síðan haldinn í Edenborg í Skotlandi dagana 6.-8. desember.

 

 

Deila: